Er Húsavík eyja?

•ágúst 6, 2008 • 1 ummæli

Ja það mætti halda það, miðað við hvernig hvernig Álverið virðist vera einkamál Húsvíkinga.

Að vísu ætla þeir í skurðinum (Ak.) að krækja sér í a.m.k. 200 störf í kringum dæmið.

Hvað ætli skapist mörg störf á Kópaskeri og Raufarhöfn?

 

Veit ekki hvort ég á að hlæja eða grenja!

Afhverju?

•ágúst 5, 2008 • 1 ummæli

Afhverju lekur viðbjóður eins lagið Drífa (Ingó og Veðurguðirnir) oft á dag út úr útvarpinu mínu?

Afhverju líður mér betur þær vikur sem ég horfi ekkert á Kastjlósið í sjónvarpinu mínu?

Afhverju verð ég alltaf fúll og pirraður þegar ég sé viðtal við hrokagikkinn Ger Haarde?

Afhverju er næstum aldrei logn á Kópaskeri?

Afhverju geta sumir ekki staðið við það sem þeir segja og aðrir ekki sagt sannleikann?

Afhverju er míkrófónninn sem ég pantaði fyrir tvem vikum ekki ennþá kominn?

Afhverju er mér alltaf svona illt í mjöðminni?

Afhverju Álver?

Afhverju passa ég ekki lengur í brúnu hettupeysuna mína?

Afhverju er svona erfitt að ná góðu bassasándi?

 

Annars er ég bara hress!

Breaking up is hard to do.

•júlí 21, 2008 • 1 ummæli

Þá er komið að því, ég hef ákveðið að skilja við hinn ástkæra og unaðslega drykk Kók. Undanfarin 13 ár hef ég drukkið að jafnaði tvo lítra af þessari dásemd á hverjum degi (næstum þúsund lítra) og furðulegt að ég sé ekki kominn að yfirlotum vegna fitu. Ég er að vísu nokkuð viss um að Kókið sé ekkert sérlega fitandi né voðalega óhollt yfir höfuð. En ég tel engu að síður að nú verði leiðir okkar að skilja. Sjálfsagt mun ég sakna þess að byrja daginn á ísköldu Kókglasi eða að geyma flösku í bílnum í sumarblíðu og finna unaðsstrauminn af sólhituðum gosmiklum elexírnum renna niður í maga. Goodbye my love.

Bjart framundan.

•júlí 2, 2008 • Rita ummæli

Loksins þegar ég er í almennilegu sumarfríi alveg KEMPE fríi, þá þarf náttúrulega að vera ömurlegt veður. En ég er þó ekki búinn að gefa sumarið alveg upp á bátinn því nú á að sjást til sólar á fimmtudaginn (ef veðurgvöðirnir lofa).

  

Hæ hó aftur.

•apríl 29, 2008 • Rita ummæli

Ég var að skoða statistík yfir innlit á þessa síðu mína. Og sá að þessi eini sem lítur hér inn daglega er hættur að kíkja. Ég skil það mjög vel enda gerist ekki mikið hér, þ.e.a.s. á síðinni. Það er þó ekki þannig að ég sé barasta búinn að vera að klóra mér í ra**gatinu síðan um áramót. Ég nenni samt ekki að rekja það allt upp hér og nú sem hefur á daga mína drifið. Kannske seinna meir.

 

Hæ hó

•janúar 23, 2008 • 1 ummæli

Vil bara benda á að ég á afmæli eftir rúmlega hálft ár. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. En ég væri alveg til í aðrar gjafir og sérstaklega þær sem keyptar eru erlendis, en þó ekki munstraða dúka, þjóðbúningadúkkur eða púkalegann fatnað. Annars er bara allt gott að frétta.

Æi

•janúar 11, 2008 • 1 ummæli

Við fórum með þá til Húsavíkur og þeir komu svona til baka, Uden nosser.

20%

•janúar 10, 2008 • Rita ummæli

Nú eru margar útsölur í gangi hér og þar, en hér á Kópaskeri er að fara í gang innsala. Já snillingarnir eru búnir að ákveða að hækka heita vatnið um heil 20%. Ég hef ekki enn séð á prenti einhverja útskýringu á hækkuninni en mig grunar og vona raunar að nú eigi eitthvað að endurbæta hitaveituna, það væri nefnilega alveg tilefni til að setja fána á stöng og opna hvítvínsflösku ef maður hefði heitt vatn alla daga mánaðarins.

Ég er að spá í hvort maður væri sáttari við 5% hækkun frekar? 20% er náttúrulega soldið brútal hækkun. Nei ekki ég. Eftir því sem ég veit best er búið að setja í gang hitaveitur út um allt land og allann heim (ef út í það er farið) sem virka alveg prýðilega. Hvað er þá svona spes hér? Það hefur líklega eitthvað klikkað í hönnuninni, og ef svo er þá er ansi blóðugt að við neytendurnir eigum borga brúsann, þar fyrir utan að margir eru búnir að þurfa að punga út fyrir nýjum hitaveitugrindum eða búnaði í þær í gegn um árin.

En hvað á að gera? Ekki hættum við að kaupa bensín þó að það hækki stöðugt. Á maður kannski bara að versla sér góða kamínu og einhverskonar innikuldagalla? Nei andskotinn, maður þarf náttúrulega að baða sig og vaska upp. Ég væri til í að sjá einhverja aðra lausn á þessu. Þar væri gaman að sjá sveitarfélagið gera eitthvað, en hvað veit ég?    

Ég á nú ekki von á miklum hvað þá kröftugum mótmælum út af þessu máli, enda Íslendinga álíka róttækir og grænar baunir, Frakkar höggva keisarann en við skrifum bréf. Og hér er mitt.       

Geimferðastofnun Öxarfjarðar

•janúar 7, 2008 • Rita ummæli

Ókey við Ingamín tókum niður jólin hjá okkur í gær og orkusölumælirinn andar léttar. Ég skaut upp nokkrum rakettum af því tilefni og má segja að það sem gerðist í kjölfarið sé það merkilegasta sem gerst hefur á heimsvísu í ár, að mínu mati allavega, Ingu þótti þetta nú ekkert svo sérstakt. En málið er það að þetta var um sexleytið og vel lygnt í lofti. Ég tendraði í rakettu númer 3 og hún upp, plaff og gaman. Svo kom svona þðþðþðþðþð hljóð og prikið og restin af raketunni kom niður og stakkst sirka 14 til 16 sentimetra oní jörðina og 187 sentimetrum frá búkkanum þar sem hún fór upp. Þetta eru kannski ekki nein undur veraldar en ég uppveðraðist allur og varð hinn hressasti eftir þetta. Bless!

Árið!

•janúar 4, 2008 • 1 ummæli

Ef ég væri það sem ég er ekki þá mundi ég skrifa á þessum tímamótum einhvern sjálfupphefjandi og skondinn annál. En það ætla ég ekki að gera. Ég set þessa mynd í staðinn til að sýna ykkur að ég er á lífi, hress, fallegur, ófeitur og til alls líklegur árið 2008. OG HANANÚ